Almennir viðskiptaskilmálar

Luna studio veitir persónulega þjónustu á sviði blómaskreytinga. Með því að nota þessa vefsíðu og þjónustu samþykkir þú neðangreinda viðskiptaskilmála okkar. Við vekjum athygli á því að skilmálar geta breyst án fyrirvara og sérstakra tilkynninga.

Árstíðabundnar vörur - Blómaskreytingar okkar eru gerðar úr ferskum blómum. Þess vegna eru öll blóm háð árstíðabundnu framboði frá ræktendum okkar. Við leggjum okkur fram við að endurskapa skreytingar eins og þær eru sýndar á vefsíðu okkar en hver blómaskreyting okkar er einstakt listaverk og er ekki nákvæm eftirlíking.

Breytingar á hönnun - Ef tiltekið blóm, litur eða skreytingarefni er ekki tiltækt munu hönnuðir okkar skipta því út fyrir blóm eða hlut af svipuðum stíl, gæðum og jafngildu eða meira virði. Hönnuðir munu alltaf leitast við að viðhalda heildarútliti, stíl og litasamsetningu upprunalegu hönnunarinnar og ef um meiriháttar breytingar er að ræða munum við hafa samband áður. Með því að leggja inn pöntun staðfestir þú og samþykkir þessa stefnu.

Innpökkun - Innpökkun á blómvendi eða blómaskreytingu er innifalin í vöruverði.

Afhendingarsvæði - .Við bjóðum viðskiptavinum afhendingarþjónustu innan höfuðborgarsvæðisins (Garðabær, Hafnafjörður, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfellsbær). Í dag bjóðum við ekki upp á afhendingarþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins á afskornum blómum.

Afhendingartími - Pantanir sem berast fyrir kl 15:00 (GMT) eru afhentar sama dag til viðtakanda. Pantanir sem berast eftir þann tíma eru sendar næsta opnunardag Luna studio.

Fyrirvari afhendinga - Það er á ábyrgð viðskiptavinarins að veita nákvæmar og tæmandi afhendingarupplýsingar, þar á meðal fullt nafn viðtakanda, heimilisfang og gilt símanúmer. Við höfum samband við móttakanda áður en pöntun fer úr húsi svo við getum tryggt afhendingu. Ef við náum ekki sambandi í móttakanda höfum við samband við sendanda til að tryggja afhendingu. Ef ekki tekst að ná sambandi og ef það er öruggt og viðeigandi (miðað við veðurskilyrði og möguleika á skemmdum), má skilja blómin eftir á öruggum og skjólgóðum stað á heimilisfangi móttakanda. Sendanda verður tilkynnt um afhendingu að henni lokinni. Ef við þurfum að afhenda pantanir aftur vegna rangra upplýsinga um heimilisfang, ekki hægt að ná í móttakanda og ekki öruggur afhendingarmöguleiki, getur viðbóta sendingargjald átt við. Við berum ekki ábyrgð á pöntunum sem skemmast vegna misheppnaðra afhendingartilrauna sem rekja má til ónákvæmra upplýsinga frá viðskiptavininum.

Blóm eru yndislega lifandi náttúruafurðir með takmarkaðan líftíma og er ekki hægt að skila blómum eða blómaskreytingum. Aðrar vörur frá Luna studio er hægt að skila gegn framvísun á kvittun.

Við leggjum mikla áherslu á ferskleika og gæði blómanna okkar. Ef þú færð blómaskreytingu sem þú telur vera skemmda eða ekki með fullnægjandi gæði biðjum við þig um að láta okkur vita innan tveggja daga frá afhendingu. Til að hjálpa okkur með gæðastjórnun biðjum við um ljósmynd og skýringu sem varpar ljósi á vandamálið sem hefur átt sér stað. Við munum svo senda þér nýja blómaskreytingu eða endurgreiða í samráði við þig.

  • Kröfur innan tilgreinds tímaramma og með skýrum ljósmyndum geta átt rétt á endurgreiðslu, skiptum eða inneign í verslun.
  • Við áskilum okkur rétt til að óska eftir að vörunni verði skilað til skoðunar áður en endurgreiðsla eða skipti eru afgreidd.
  • Vandamál sem tilkynnt er seinna en tveim dögum eða vandamál sem stafa af óviðeigandi umhirðu blóma (samkvæmt leiðbeiningum okkar um umhirðu) eða vanrækslu, verða ekki gjaldgeng fyrir endurgreiðslu, skipti eða inneign.
  • Vinsamlega athugið að minniháttar breytingar á blómategund, lit eða blómaskreytingum (samkvæmt vöruframsetningu) teljast ekki galli eða tjón sem réttlætanlegt er fyrir endurgreiðslu eða skipti.

Gagnasöfnun og notkun - Við söfunum persónuupplýsingum (eins og nafni, heimilsfangi, netfangi, símanúmeri og greiðsluupplýsingum) eingöngu í þeim tilgangi að vinna úr pöntunum þínum og auðvelda afhendingu.

Persónuvernd  (GDPR) - Sem fyrirtæki sem starfar innan Íslands og evrópska efnahagssvæðisins (EES) fylgjum við lögum um persónuvernd (lögum 99/2018), sem innleiða almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR). Þetta þýðir að persónuupplýsingar þínar eru unnar á lögmætan, sanngjarnan og gagnsæjan hátt og eru varðar gegn óheimilum aðgangi, uppljóstrun, breytingum og eyðingu.

Réttindi þín - Samkvæmt íslenskum persónuverndarlögum og GDPR hefur þú réttindi varðandi persónuupplýsingar þínar, þar á meðal rétt til aðgangs að, leiðréttingar, eyðingar, takmarkana á vinnslu og mótmæla vinnslu gagna þinna.

Gagnamiðlun - Við munum ekki selja, dreifa eða leigja persónuupplýsingar þínar til þriðja aðila nema við hööfum skýrt leyfi þitt eða séum skyld að gera það samkvæmt lögum. Við gætum deilt nauðsynlegum gögnum með traustum þriðja aðila (t.d. afhendingaraðilum, greiðslumiðlunum) til að afgreiða pöntunina þína og tryggja að þeir fari einnig að viðeigandi reglum um gagnavernd

Blómasjálfsalar

Luna studio hefur umboð fyrir endursölu á blómasjálfsölum og má finna eftirfarandi skilmála hér:

  1. Kaupverð sjálfsala er greitt í tveim hlutum, 50% við pöntun og 50% við staðfestingu framleiðanda að hægt sé að sækja sjálfsala úr verksmiðju.
    1. Framleiðsla sjálfsala er um 80-90 dagar frá pöntun.
    2. Framleiðsla sjálfsala hefst við innborgun.
  2. Luna studio sér um flutning á sjálfsölum frá verksmiðju til Íslands og afhendingu innan höfuðborgarsvæðisins.
  3. Kaupandi er ábyrgur fyrir uppsetningu sjálfsala og tengdum kostnaði.
    1. Luna studio ehf aðstoðar við gangsetningu sjálfsala í samvinnu með kaupanda og framleiðanda.
  4. Sjálfsalar hafa greiðsluposa frá Nayax og kaupandi þarf að klára eftirfarandi til að taka á móti greiðslum.
    1. Kaupandi þarf að gera greiðslugáttarsamning fyrir Nayax posa við Teya.
    2. Kaupandi þarf að gera þjónustusamning við Tæknivit (þjónustuaðili Nayax á Íslandi). Tæknivit þarf upplýsingar um:
      1. Nafn kaupanada, kennitala kaupanda, serial númer sjálfsala (Luna studio upplýsir með serial númer) og tengi upplýsingar við Teya.
      2. Kaupandi ber ábyrgð að kynna sér þjónustu- og uppsetningargjald Tæknivits.